Vilhjálmi Bretaprins og Katrínu hertogaynju af Cambridge hefur fæðst dóttir. Nýjasti meðlimur konungsfjölskyldunnar fæddist laust eftir klukkan hálf átta í morgun og vó 15 merkur. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá Kensington höll.

Mikil eftirvænting hafði verið eftir prinsessu. En nýfædda prinsessan er fjórða í röð erfingja bresku krúnunnar, á eftir afa sínum Charles, föður og bróður.

Enn er óvíst hvað stúlkan mun heita en samkvæmt veðbönkunum er nafnið Alice talið líklegast og Charlotte talið næstlíklegast.