Nýjasti meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar, sonur Kate Middleton og Vilhjálms Bretaprins verður að öllum líkindum sýndur á tröppunum fyrir utan St. Mary´s spítalann í dag ef heilsa móður og sonar er það góð að þau megi fara heim af spítalanum.

Þetta kemur fram á The Telegraph . Þar með fylgja þau Kate og Vilhjálmur hefðinni að sýna nýjasta meðlim fjölskyldunnar á spítalatröppunum áður en haldið er heim eftir fæðinguna.

Prinsinn fæddist í gær á St. Mary´s spítalanum í London kl. 16:24 að staðartíma. Hann vó rúmlega 15 merkur og gekk fæðingin vel að sögn talsmanns konungsfjölskyldunnar.

Til að fagna fæðingunni verður einnig skotið af fallbyssum í London í dag klukkan 15 á íslenskum tíma.