Og Vodafone hyggst að efla GSM fjarskiptakerfi sitt á þessu ári með því að taka í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution). Þessi tækni getur margfaldað flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

Prófanir vegna EDGE eru þegar hafnar og er gert ráð fyrir að kerfið verði tekið í notkun á fjórða ársfjórðungi 2005. Gert er ráð fyrir að EDGE tæknin nái til notenda á höfuðborgarsvæðinu og í Eyjafirði fyrst um sinn og eru viðskiptavinir hvattir til að kynna sér hvort GSM sími þeirra styðji EDGE. Kostnaður við uppbyggingu á fjarskiptakerfi Og Vodafone vegna EDGE væðingar og tengdra verkefna er áætlaður um 250 milljónir króna.

Tæknin gerir notendum meðal annars mögulegt að miðla gögnum, ljósmyndum, hreyfimyndum eða vafra á Internetinu á þrisvar til fjórum sinnum meiri hraða en mögulegt hefur verið hingað til. Flutningshraði í EDGE er í raun mismunandi hvað fjarlægð frá sendum varðar og milli einstakra farsíma en tæknin er frá 120 kb/s til 238 kb/s í kerfi Og Vodafone.

EDGE styrkir hraðann í GPRS (General Packet Radio Service) sem er viðbót við GSM kerfið og býr yfir allt að því 52 kb/s flutningshraða. GSM kerfi með GPRS hafa verið nefnt kynslóð 2,5 en kerfi með EDGE styrkingu er gjarnan nefnt kynslóð 2,75. Með EDGE er unnt að veita ýmiss konar þjónustu sem er möguleg í þriðju kynslóð farsímakerfa (3G).

EDGE kerfið mun nýtast vel fyrir þær vörur sem eru væntanlegar á þriðja og fjórða ársfjórðungi hjá Og Vodafone. Þá nýtist EDGE einnig vel fyrir þjónustu sem er nú þegar fyrir hendi hjá Og Vodafone.

?EDGE er mikil bylting fyrir viðskiptavini," segir Gestur G. Gestsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Og Vodafone. ?Hér er um að ræða gríðarlega öfluga tækni því hún gefur færi á nýjum þjónustuleiðum til handa viðskiptavinum. Má þar nefna Vodafone Mobile Connect, sem er gagnaflutningskort fyrir fartölvunotendur. Slíkt kort nýtist sérlega vel í GSM/EDGE. Vodafone Mobile Connect er væntanlegt fyrir viðskiptavini í haust. Það hefur nú þegar slegið í gegn víða erlendis. Við vonumst því til þess að EDGE eigi eftir að stuðla að enn breiðara vöruúrvali hjá Og Vodafone og efla burðargetu í GSM kerfinu verulega.?