Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík samþykkti að haldið yrði sameiginlegt prófkjör í báðum kjördæmum höfuðborgarinnar um mánaðarmótin ágúst/ september í haust.
Munu allir flokksmenn í Reykjavík velja frambjóðendur á framboðslista í kjördæmunum tveimur, en félagsfundur samþykkti tillögu stjórnar þess efnis í gær.
Segir í fréttatilkynningu frá Verði að mikill einhugur hafi verið um þá tillögu en heimildir Viðskiptablaðsins segja að jafnframt hafi komið fram tillaga um að halda prófkjör fyrir hvort kjördæmi fyrir sig.