Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður haldið dagana 13. og 14. mars næstkomandi.

Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Varðar, fulltrúaráðsins í Reykjavík, sem fram fór í Valhöll í morgun.

Þá verður landsfundur flokksins haldinn dagana 26. til 29. mars eins og áður hefur komið fram.

Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir að þátttaka í prófkjöri sé heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörs­dagana og þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í kjördæminu við kosningarnar og hafa undirritað inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar.