Ellefu prófmál, sem eiga að skýra réttarstöðu þeirra sem hafa gengistryggð lán, hafa verið valin og fara fyrir héraðsdóm á næstunni. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag en þetta kom fram í máli Einars Huga Bjarnarsonar lögmanns á fundi um fjármögnunarsamninga sem Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Samtök vrslunar og þjónustu héldu í gær.

Umboðsmaður skuldara og Samtök fjármálafyrirtækja skipuðu fjóra lögmenn í samráðshóp og var Einar Hugi í þeim hópi. Verkefni hópsins var að greina þau álitaefni sem nauðsynlegt þykir að reyni á fyrir dómi.

Málin voru 21 talsins en þau ellefu voru valin sem þykja hentugust til að bera undir dómstóla. Sex þessara mála tengjast lánum einstaklinga og sex lánum fyrirtækja. Samkvæmt samkomulagi við héraðsdómstóla munu þessi mál fá flýtimeðferð.