Fyrirtækið Promens, sem hefur verið selt erlendu fyrirtæki og hyggst flytja höfuðstöðvar sínar frá Íslandi, mun ekki stöðva starfsemi sína á Dalvík þrátt fyrir flutningana. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu .

„Ég heyrði af mögulegum flutningi höfuðstöðva fyrirtækisins seint í haust. En miðað við þær upplýsingar sem ég hef þá verða engar breytingar á innlendri starfsemi fyrirtækisins,“ segir Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, í samtali við Fréttablaðið.

Fyrirtækið hefur gefið út að flutningarnir séu tilkomnir vegna þess að Seðlabankinn hafi synjað því um undanþágu frá gjaldeyrishöftum.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið hafi viljað kaupa gjaldeyri á afslætti, framhjá gjaldeyrisútboði bankans fyrir nokkra milljarða. Seðlabankinn hafi ekki veitt slíkar undanþágur.