Yfirstandandi ár hefur verið eitt hið besta í sögu Promens Dalvík (áður Sæplast Dalvík). Unnið hefur verið á þrískiptum vöktum 5 daga vikunnar allt árið og útflutningur verið mjög blómlegur. Undanfarna mánuði hefur fimm daga vinnuvika ekki dugað til að anna eftirspurn og því hefur framleiðslan einnig verið keyrð um helgar.

Í frétt á hei9masíðu SA kemur fram að Promens Dalvík er með sterka stöðu á innanlandsmarkaði, en styrkur fyrirtækisins liggur ekki síður í mjög sterkri markaðsstöðu á helstu kerjamörkuðum erlendis.

Lætur nærri lætur að um 20% af veltu ársins komi frá vörum sem markaðssettar hafa verið undanfarin ár. Hjá Promens Dalvík starfa um 45 manns og er gert ráð fyrir óbreyttum umsvifum á næsta ári. Daði Valdimarsson er framkvæmdastjóri Promens Dalvík.