Promens gekk nú í desember frá endurfjármögnun samstæðunnar að upphæð 170 milljónir evra, eða 27 milljarða króna. Um er að ræða fjölmyntalán til 5 ára í samstarfi við aðal viðskiptabanka Promens, DnB NOR og NORDEA.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Promens en samhliða þessu var gengið frá endurfjármögnun á láni hjá Landsbankanum, sem er viðskiptabanki Promens á Íslandi að upphæð 6 milljónir evra (uþb. 1 milljarður króna) til 5 ára.
„Góður árangur hefur náðst í að styrkja rekstrargrundvöll Promens á árinu sem er að líða” segir Jakob Sigurðsson, forstjóri Promens, í tilkynningunni.
„Mikill viðsnúningur hefur orðið á rekstrinum frá samdráttarárinu 2009 og útlit er fyrir góða rekstrarafkomu á árinu 2011. Þessi fjármögnunarsamningur við helstu viðskiptabanka Promens, ásamt kaupum Framtakssjóðs Íslands á 49,5 prósent hlut í félaginu í September, endurspegla traust þessara aðila á fyrirtækinu og sýna glöggt þær væntingar sem fjármálastofnanir og fjárfestar hafa til félagsins. Við munum leggja okkur fram við að standa undir þeim væntingum. Þessir samningur eru sérstaklega ánægjulegir og mikilvægir í ljósi þess umróts sem nú ríkir fjármagnsmörkuðum.“
Jakob Sigurðsson, forstjóri Promens.