Prufudæling úr þeirri jarðhitaholu sem verður notuð sem aðalhola fyrir hitaveitu á Eskifirði hófst sl. miðvikudag. Þá var dælan í holunni gangsett og farið að dæluprófa. Það er gert í þrepum til að meta hvernig holan og svæðið bregst við dælingu. Fyrstu mælingar staðfesta þær væntingar sem gerðar voru til holunnar og virðist hún standa vel undir þeim. Niðurstöður eru þó ekki marktækar að gagni fyrr en eftir dælingu í tvær til þrjár vikur a.m.k. en þá fer væntanlega að sjást hvernig jarðhitasvæðið bregst við.

Fylgst er með vatnsborði svæðisins í öðrum holum nærri vinnsluholunni til að sjá hvaða áhrif dæling hefur á það segir í frétt á heimasíðu Eskifjarðar.

En strax í upphafi er ljóst að holan sjálf er vel opin út í jarðhitakerfið og þolir vel dælingu sem er vel yfir hámarksnotkun, þ.e.a.s. mesta notkunartoppi, sem áætlaður er fyrir Eskifjörð með þeirri fjölgun sem fyrirsjáanleg er. Úr holunni er verið að dæla um 40 lítrum á sekundu af 80,6° heitu vatni.