PricewaterhouseCoopers (PwC) gerir alvarlega athugasemd við þau vinnubrögð að rannsóknarskýrslum opinbers aðila um Glitni banka og Landsbankann sé komið í hendur fjölmiðla án þess að PwC hafi verið kynnt efni skýrsnanna.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Fréttatilkynning í heild:

„PricewaterhouseCoopers (PwC) gerir alvarlega athugasemd við þau vinnubrögð að rannsóknarskýrslum opinbers aðila um Glitni banka og Landsbankann, er m.a. varða starfsheiður PwC, sé komið í hendur fjölmiðla til umfjöllunar án þess að PwC hafi verið kynnt efni skýrslnanna. PwC er því ómögulegt að svara þeim alvarlegu ásökunum sem látið er í veðri vaka að komi þar fram.

Af hálfu embættis sérstaks saksóknara og rannsóknaraðila á hans vegum hefur ekki verið haft samband við PwC vegna rannsóknar fyrirliggjandi gagna. PwC hefur í dag farið þess á leit við sérstakan saksóknara að fá einnig aðgang að rannsóknarskýrslunum.

Efnislegum athugasemdum verður svarað á réttum vettvangi en PwC áréttar að endurskoðunarvinna félagsins var í fullu samræmi við starfsskyldur endurskoðenda.“