Pwc sinnir nú rannsókn á starfsemi SpKef fyrir hönd Fjármálaeftirlitsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn og stjórnendum hins endurreista SpKef.

Í tilkynningu frá stjórn og stjórnendum hins endurreista SpKef að endurreisn sjóðsins miði vel áfram. Í tikynningunni segir jafnframt:

„Nauðsynlegt er að aðgreina á milli aðila þegar fjallað er um lánveitingaákvarðanir Sparisjóðs Keflavíkur. Þann 22. apríl 2010 var nýr sparisjóður reistur við undir merkjum Spkef sparisjóðs.  Rannsókn stendur nú yfir af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á gamla Sparisjóði Keflavíkur og sinnir PWC þeirri rannsókn fyrir hönd FME. Stjórn og sparisjóðsstjóri nýja Spkef telja nauðsynlegt að bíða endanlegra niðurstaðna rannsóknar FME til að fá heildarmynd af starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur áður en hægt er að fella einhverja dóma byggða á umfjöllun fjölmiðla.  Allir hlutaðeigandi hljóta þó að telja eðlilegt að slík skoðun fari fram. Það er mikilvægt í þeirri umræðu sem verið hefur undanfarið í fjölmiðlum að allir þeir aðilar sem til skoðunar eru vegna starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur njóti sannmælis og sanngirni.  Stjórn hins nýja Spkef sparisjóðs vill taka það fram að hvorki hún né stjórnendur nýja sjóðsins eru beinir þátttakendur í þeirri rannsókn.


Þá hafa málefni nýja Spkef sparisjóðs, sem endurreistur var, einnig verið til umfjöllunar. Þeirri endurreisn miðar vel áfram.  Umtalsverð vinna hefur verið lögð í endurskipulagningu á starfsemi sparisjóðsins, á endurútreikningum á íbúðarlánum, stofnfjárlánum, erlendum lánum og endurskipulagningu  lítilla og meðalstórra fyrirtækja.  Þá hefur skipulag sjóðsins verið endurskoðað og dregið hefur verið úr kostnaði. Unnið er að því hörðum höndum að stilla upp stofnefnahagsreikning nýs sparisjóðs með það fyrir augum að leiða í ljós endurfjármögnunarþörf hans. Er þá meðtalinn skuldbinding ríkisins vegna innistæðna og mismunur á milli skulda og eigna. Áréttað skal að allar innistæður í sparisjóðum og útibúum þeirra eru að fullu tryggðar, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þess efnis. Niðurstaða vinnunnar við  endurskipulagninguna mun liggja fyrir í lok febrúar.

---
Um Spkef sparisjóð
Spkef sparisjóður var stofnaður með yfirfærslu á innlánum og eignum úr Sparisjóði Keflavíkur í nýjan sparisjóð.  Fimm manna stjórn var sett yfir sjóðinn í lok apríl 2010. Núverandi sparisjóðsstjóri kom til starfa hjá sjóðnum 1. nóvember 2010. Hvorki stjórnarmennirnir né nýráðinn sparisjóðsstjóri Spkef höfðu aðkomu að gamla Sparisjóðnum í Keflavík

Sextán útibú eru rekin á vegum nýja sparisjóðsins sem fylgdu fjórum eldri sparisjóðum; Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Vestfirðinga, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Ólafsvíkur. Afgreiðslustaðirnir mynda uppistöðu fjármálaþjónustu á þeim stöðum sem sparisjóðurinn þjónar. Þeir eru nú á Bíldudal, Flateyri, Ólafsvík, Garði, Patreksfirði, Grindavík, Sandgerði, Hvammstanga, Njarðvík, Súðavík, Ísafirði, Tálknafirði, Keflavík, Vogum, Króksfjarðarnesi og Þingeyri.  Nýi Spkef sparisjóðurinn er þátttakandi í endurreisn íslensks atvinnulífs og leitast hann við að vera fyrsti valkostur einstaklinga og lítilla og meðalstórra fyrirtækja hvað varðar fjármálaþjónustu á þeim svæðum sem sjóðurinn starfar á.“