Davíð Lúther Sigurðsson, framkvæmdastjóri Silent, segir að skæruliðamarkaðssetning sé að aukast en slík markaðssetning snýst um að fá fólk til að taka þátt og koma fólki á óvart.

Hjá fyrirtækinu starfa 3 starfsmenn en yfir 20 manns koma að verkefnum. Fyrirtækið kynnti sig á óhefðbundinn hátt á Ímark hátíðinni með því að dreifa QR-kóðum um allan sal, meira að segja inni á klósettum og inni í lyftum.