Ein stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, hefur ákveðið að framleiða 10 þátta sjónvarpsseríu sem byggir á íslenska spurningaleiknum QuizUp. Þátttakendur í upptökuveri NBC munu etja kappi við sjónvarpsáhorfendur sem sitja heima hjá sér, hvar sem er í Bandaríkjunum, og spila leikinn í snjalltækjum sínum. Sigurvegarar í þættinum munu hljóta allt að eina milljón dala sem jafngildir u.þ.b. 130 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

NBC gerir þættina í samstarfi við íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla, sem þróaði QuizUp, en þættirnir munu einfaldlega heita QuizUp . QuizUp er í dag vinsælasti stafræni spurningaleikur í heimi með rúmlega 75 milljónir notenda. Leikurinn hefur komist í fyrsta sæti App Store í 128 löndum. NBC hefur framleitt fjölmarga vinsæla þætti á borð við Frasier, Friends, Seinfeld, The West Wing, Fear Factor, The Office, America's Got Talent, The Biggest Loser, Saturday Night Live, Tonight Show með Jimmy Fallon og The Voice.

Sigurvegarinn fær allt að milljón dala

Þættirnir ganga þannig fyrir sig að ef þátttakandi í upptökuveri NBC vinnur átta spurningalotur gegn átta ólíkum keppendum, sem geta verið staddir hvar sem er innan Bandaríkjanna, þá geta þeir unnið allt að eina milljón dala. Ef einhverjir af andstæðingunum í heima í stofu vinna sínar lotur, þá hljóta þeir upphæðina sem í boði var fyrir þá lotu. Þeir sem vilja etja kappi við þátttakanda vikunnar í upptökuverinu og eiga möguleika á að hljóta verðlaunaféð munu geta komist í pott með því að keppa í ákveðnum spurningaflokkum í QuizUp appinu vikuna fyrir hvern þátt. Það geta því allir sem eru með QuizUp appið komist í pottinn.

„QuizUp sjónvarpsþátturinn er frábært næsta skref hjá okkur og við gætum ekki beðið um betri samstarfsaðila en NBC. Síðastliðna fimm mánuði höfum við algerlega breytt QuizUp með því að færa leikinn nær því að vera líka samfélagsmiðill,“ segir Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi QuizUp.

Höfundar að QuizUp sjónvarpsþættinum eru þeir Jeff Apploff og Wes Kauple en sá fyrrnefndi mun stýra gerð þáttanna. Framleiðsla þáttanna er í höndum Universal Television og Apploff Entertainment. Verkefninu er stýrt fyrir hönd QuizUp af Viggó Erni Jónssyni og Þorsteinn B. Friðrikssyni.