Í dag gaf hollenski bankinn Rabobank út jöklabréf fyrir 25 milljarða króna. Bréfin eru til 18 mánaða og bera 12,5% vexti. Landsbankinn er umsjónaraðili útgáfunnar. Aðeins ein útgáfa jöklabréfa hefur verið stærri. Hún var upp á 40 milljarða króna og var einnig á vegum Rabobank.

Í Vegvísi Landsbankans kemur fram að Rabobank hefur verið nokkuð fyrirferðarmikill á sviði útgáfu jöklabréfa en í lok júlí var tilkynnt um 5 milljarða kr. jöklabréfa útgáfu bankans.

Heildarupphæð útistandandi jöklabréfa er nú um 400 milljarðar króna. Það jafngildir um þriðjungi áætlaðrar landsframleiðslu þessa árs. Greiningardeild hefur talið miklar líkur á að stærstur hluti þeirra 86,5 milljarðar króna jöklabréfa sem falla á gjalddaga í september verði framlengdur. Veiking krónunnar að undanförnu eykur aðeins líkur á að svo verði.

Fram til 15:30 í dag hafði velta á gjaldeyrismarkaði numið 27 milljörðum króna, gengisvísitalan stóð í 118,9 og hafði krónan styrkst um 0,46% frá opnun markaða. Á föstudaginn nam veltan alls 62,4 milljarða króna og veiktist krónan um 2,35% yfir daginn og stóð vísitalan í 118,85 við lokun markaða.