Einn af ráðgjöfum Davids Cameron, forsætisráðherra Breta, er sakaður um að brjóta gegn börnum. Hann sagði upp störfum þann 12. febrúar síðastliðinn vegna þessa hneykslis.

Cameron kveðst ánægður með það hvernig forsætisráðuneytið hefur brugðist við ásökunum á hendur manninum, sem heitir Patrick Rock. „Ég hef talað skýrt um það að við verðum að bregðast rétt við þessu og ég er ánægður með það hvernig forsætisráðuneytið hefur gert það,“ segir hann.