Árshátíð starfsfólks Stjórnarráðsins fer fram í Hörpu á morgun. Búast má við því að veislan verði öll hin glæsilegasta. Anna Svava verður veislustjóri og Páll Óskar Hjálmtýsson spilar fyrir dansi og fær Eurovisionstjörnur í lið með sér.

Starfsmenn stjórnarráðsins gerðu sérstakt tónlistarmyndband til að vekja athygli á árshátíðinni og má segja að í myndbandinu sé öllu tjaldað til. Þar sjást til dæmis ráðherrarnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Eygló Harðardóttir dansa.

Hér má sja myndskeið með dansandi ráðherrum.

Viðbót klukkan 0:50
Myndskeiðið hefur nú verið fjarlægt af veraldarvefnum.