Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir hefur verið ráðin fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM. Hún er fædd árið 1979, lauk BS-prófi í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2009 og ML-prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2014.

Hún starfaði áður hjá velferðarráðuneytinu, m.a. að verkefnum á sviði jafnréttismála, og þar áður sem skrifstofu- og mannauðsstjóri Húðlæknastöðvarinnar ehf. Hjá BHM mun Jóhanna hafa umsjón með fræðslumálum, m.a. skipulagi námskeiðahalds fyrir félagsmenn, starfsmenn og kjörna fulltrúa aðildarfélaga.

Einnig mun hún sinna margvíslegum verkefnum sem lúta að jafnrétti á vinnumarkaði og í samfélaginu, m.a. sem starfsmaður jafnréttisnefndar BHM sem er ein fastanefnda bandalagsins.