Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir á mannvirkjasvið Samtaka iðnaðarins, það eru þau Eyrún Arnarsdóttir og Kristján Daníel Sigurbergsson.

Eyrún Arnarsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI. Eyrún er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands auk þess hefur hún lokið viðurkenndri fagvottun á sviði persónuverndar. Hún starfaði sem lögfræðingur Samtaka iðnaðarins á árabilinu 2016-2017 en þar áður var hún fulltrúi hjá Fjeldsted & Blöndal lögmannsstofu.

Kristján Daníel Sigurbergsson hefur verið ráðinn sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI. Kristján er rafvirkjameistari að mennt og hefur lokið rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem innkaupastjóri hjá Green Energy Geothermal frá árinu 2014. Áður starfaði hann sem vörustjóri hjá Smith og Norland.