Dr. Jón Þór Sturluson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Jón Þór hefur fjölbreytta reynslu úr akademíu og atvinnulífi, nú síðast sem dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Hann hefur gegnt stöðu dósents við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2006, í hlutastarfi frá 2013, og stundað rannsóknir og kennslu á sviði fjármála og hagfræði ásamt því að veita meistaranámi í fjármálum- og reikningshaldi forstöðu.

Frá 2013 til 2020 starfaði Jón Þór sem aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins. Þar bar hann meðal annars ábyrgð á varúðareftirliti með bönkum, þjóðhagsvarúð og viðbúnaði við áföllum. Þá var hann meðlimur í kerfisáhættunefnd.

Hann var ritstjóri Tímarits um viðskipti- og efnahagsmál um tíma og frá 2004 til 2006 gegndi hann stöðu dósents við Háskólann á Bifröst og starfi forstöðumanns Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Jón Þór útskrifaðist með doktorsgráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 2003 með áherslu á atvinnuvega- og orkuhagfræði. Áður lauk hann B.Sc. og M.Sc. prófi frá Háskóla Íslands.

Á alþjóðlegum vettvangi hefur Jón Þór setið í stjórn Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA), verið áheyrnarfulltrúi í Evrópska kerfisáhætturáðinu (ESRB), fulltrúi í ráðgjafaráði Fjármálastöðugleikaráðsins fyrir Evrópu (FSB-RCG Europe) og þátttakandi í ýmsum norrænum nefndum á sviði fjármálaeftirlits og fjármálastöðugleika. Haustið 2019 var hann í gestastöðu við fjármálastöðugleikastofnun Alþjóðagreiðslubankans (BIS). Jón Þór hefur einnig tekið þátt í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi, einkum á sviði orkumála og fjármálastöðugleika.