Vegna tæknilegra vandkvæða berast engar undirskriftir eins og er vefinn Kjósum.is en þar hefur síðustu daga verið safnað undirskrifum gegn því Iceave frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi.

Tæplega 31.800 manns hafa skrifað undir áskorun til bæði þings og forseta landsins um að hafna því frumvarpi sem nú liggur fyrir. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið fer fram innan skamms.

Í tilkynningu á vef Kjósum.is kemur fram að vegna „ítrekaðra árása einstaklings og vina hans [hafi] verið haft samband við Ríkislögreglustjóra.“ Þá kemur einnig fram að öllum tilraunum til árása verður fylgt eftir með mesta mögulega þunga.