IFS greining ráðleggur fjárfestum að kaupa bréf í TM. Þetta kemur fram í morgunpósti IFS greiningar en TM birti uppgjör þriðja ársfjórðungs núna í vikunni. IFS telur að sannvirðisgengi félagsins sé 32,7 krónur á hlut. Gengi bréfanna er nú 31,4 krónur á hlut.

Hagnaður TM nam 713,8 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta er 28% samdráttur frá þriðja ársfjórðungi í fyrra þegar hagnaðurinn nam 994,184 milljónum króna.

Á fyrstu níu mánuðum ársins jókst hagnaðurinn aftur á móti á milli ára en þá nam hann 1,9 milljörðum króna sem var um 100 milljónum krónum meira en í fyrra.