Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn aðalritstjóri miðla Frjálsrar fjölmiðlunar, bæði netmiðla og DV. Kristjón hóf störf hjá Vefpressunni árið 2012. Tveimur árum síðar var hann ráðinn ritstjóri Pressunar, sem rak þá vefina DV.is, Pressan.is, Eyjan.is og Bleikt.is.

Kristjón var annar tveggja ritstjóra DV árið 2016, en tók aftur við netmiðlunum í maí síðastliðinn.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt af nýjum eigendum DV, Frjálsrar fjölmiðlunar með þessari ráðningu. Þetta er mikil áskorun en forréttindi mín er að hafa við hlið mér metnaðarfullt fagfólk í öllum stöðum sem er reiðubúið til að leggja allt í sölurnar,“ segir Kristjón.

„Lestur á blað DV og DV.is hefur verið á mikilli siglingu og mörg tækifæri fyrir hendi til að styrkja okkur á öllum vígstöðvum. Það eru spennandi tímar framundan og ég hlakka til að taka þátt í að gera gott blað betra með því góða og hæfileikaríka fólki sem starfar hjá fyrirtækinu.“

Þá hefur Björn Þórir Sigurðsson hefur verið ráðinn til Frjálsrar fjölmiðlunar.  Hann mun sinna þróunarvinnu fyrir félagið, bæði hvað varðar netmiðla og blað.

Björn Þórir hefur m.a. gegnt starfi framleiðanda hjá RVK stúdíós, fyrirtæki Baltasars Kormáks, verið framleiðandi hjá Latabæ, stýrt sölu- og markaðssviði Árvakurs, verið sjónvarpsstjóri Skjás 1 og dagskrárstjóri á Stöð 2, svo fátt eitt sé nefnt.