Fjármálaráðuneytið hefur birt upplýsingar á vef sínum „vegna rangfærslna í umfjöllun um breytingar á tekjuskattskerfinu á næsta ári [...]“ þar sem fyrirhugaðar skattalækkanirnar ríkisstjórnarinnar eru ítrekaðar.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði í útvarpsþættinum Sprengisandi um helgina að ekki yrði um neina skattalækkanir á næsta ári heldur myndu þær ekki koma fram fyrr en árið 2021. „það eru skattahækkanir árið 2020,“ sagði Björn Leví í umræddum þætti.

„Strax um áramót kemur til framkvæmda fyrri hluti skattkerfisbreytingarinnar. Skattgreiðslur fólks með tekjur við fyrstu þrepamörkin munu lækka um 42 þúsund krónur á næsta ári. Þá hefur að sjálfsögðu verið tekið tillit til lækkunar persónuafsláttar sem beitt er í samspili við upptöku nýs lægsta þreps, til að beina þunga lækkunarinnar til þeirra sem eru um eða undir meðaltekjum,“ segir á vef ráðuneytisins.

„Einnig telur fjármála- og efnhagsráðuneytið rétt að benda á að hækkun persónuafsláttar í stað nýs grunnþreps hefði ekki skilað meiri ávinningi til tekjulægstu hópanna. Sú aðferð hefði þvert á móti skilað mun minni ávinningi til lágtekjuhópa og hefði auk þess skilað sömu krónutölu upp allan tekjustigann. Lækkun persónuafsláttar hefði þannig einungis í för með sér 5.800 kr. ávinning og hefði sá ávinningur farið upp allan tekjustigann. Hefði hækkun persónuafsláttar átt að skila 10þ. kr. hærri ráðstöfunartekjum hefði slík breyting kostað ríflega 31 ma.kr.“

Um skattalækkanirnar almennt segir á vefnum: „Kynnt hefur verið skattalækkun í tveimur áföngum í stað þriggja, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021. Mun ábati hennar skila sér strax til allra tekjutíunda. Þegar lækkunin er að fullu komin fram munu ráðstöfunartekjur heimilanna aukast um 21 ma.kr. á ári. Fyrir einstaklinga með tekjuskattsstofn í kringum 350 þúsund krónur þýðir það 125 þúsund króna skattalækkun á ári.“