Stjórn Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, fundar í dag með Kjartani Þór Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Kadeco, og fer fram á upplýsingar um fjárfestingar félags í helmingseigu hans í fasteignum á Ásbrú í Reykjanesbæ. Félög í eigu eða tengd viðskiptafélaga Kjartans hafa keypt þrjár fasteignir af Kadeco fyrir 150 milljónir króna í heildina. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins .

Kadeco er alfarið í eigu íslenska ríkisins og leiðir leigu og sölu á fasteignum og landi sem áður tilheyrðu samfélagi Varnarliðsins, sem í dag er nefnt Ásbrú. Sigurður Kári Kristjánsson, stjórnarformaður Kadeco, segir að fjárfestingar einkahlutafélagsins Airport City á Ásbrú hafi komið til umræðu á stjórnarfundi fyrri hluta maí en hafi verið frestað þar til í dag. Kjartan á helmingshlut í félaginu Airport City.

Kjartan segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi áður upplýst stjórnarformann um þessi mál og að það væru engir hagsmunaárekstrar og enn fremur að umfangið væri sambærilegt því að borgarstjórinn í Reykjavík eigi fasteign innan borgarmarka.