Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, fundaði í dag með Helle Thorning-Schmidt, formanni danskra jafnaðarmanna og forsætisráðherra í forsætisráðherraskrifstofunni á Kristjánsborg. Fundarefni þeirra var staða landanna tveggja og mikilvægi þess að fjölga störfum.

Fram kemur í tilkynningu um fundinn að þau Helle Thorning-Schmidt hafi gert Árna Páli grein fyrir nýjum tillögum dönsku ríkisstjórnarinnar um lækkun skatta og álaga á fyrirtæki í þeim tilgangi. Árni Páll greindi frá hliðstæðum hugmyndum Samfylkingarinnar um lækkun tryggingagjalds í sama tilgangi og nýjar leiðir til að tryggja litlum og meðalstórum fyrirtækjum tryggari aðgang að ódýru lánsfé og fjárfestingarfé. Báðir formennirnir hafi verið sammála um mikilvægi öflugs atvinnulífs sem undirstöðu norrænnar velferðar.

Þá ræddu þau um stöðu evrusvæðisins og stöðu Danmerkur í því samhengi en Danir fylgja öllum skilyrðum evrusamstarfsins í hagstjórn sinni. Árni Páll kynnti hugmyndir Samfylkingarinnar um að hraða ferlinu um umsókn Íslands um aðild að ESB og fá efnislega niðurstöðu í það ferli sem fyrst. Danski forsætisráðherrann fagnaði þeirri hugmynd.