Lítið upplag af iPhone 6s símunum voru seldir með gölluðum rafhlöðum. Símarnir slökkva á því óvænt á sér þrátt fyrir að hafa fulla hleðslu. Þeir voru allir framleiddir milli september og október 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Apple .

Einnig kemur fram að gallinn í símunum sé ekki öryggismál, en eins og flestum er kunnugt, þá lenti helsti keppinautur Apple, Samsung, í vandræðum með síma sem sprungu. Apple kemur til með að skipta rafhlöðum biluðu símanna út - eftir tilvikum. Til að mynda þarf að laga brotna skjái - ef þeir voru brotnir fyrir, áður en rafhlöðunni er skipt út.