Af höfuðborgum Norðurlandanna er rafmagn til heimilisnota ódýrast í Reykjavík og greiðir dæmigert heimili um kr. 45 þúsund á ári fyrir raforku samkvæmt samantekt á heimasíðu Samorku.

Þar kemur fram að dýrast er rafmagnið í Kaupmannahöfn þar sem dæmigert heimili greiðir um kr. 216 þúsund á ári. Næst Reykjavík er Helsinki, með kr. 51 þúsund, en sé miðað við gengi fyrir bankakreppu var raforkan ódýrust í Helsinki, eða kr. 37 þúsund. Þar er miðað við almenn raforkukaup sem að stærstum hluta til koma frá kola- og kjarnorkuverum.

Í Helsinki kostar 15% aukalega að kaupa orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við þá sem við nýtum alfarið til raforkuframleiðslu hérlendis. Í samanburði Samorku er miðað við gengi 14. nóvember sl., en til viðmiðunar vegna bankakreppunnar er staðan einnig borin saman miðað við gengi 1. júlí sl. Varla þarf að taka fram að samanburðurinn yrði Íslandi enn hagstæðari ef miðað yrði við gengi dagsins í dag, í stað 14. nóvember segir í frétt Samorku.