Flatskjáir
Flatskjáir
© BIG (VB MYND/BIG)
Raftækjasala í júní jókst um 8,5% á föstu verðlagi og dróst saman um 0,7% á breytilegu verðlagi frá síðasta ári. Verð á raftækjum var 8,5% lægra nú en í júní 2010. Á föstu verðlagi dróst sala á raftækjum saman um 11,1% frá maí til júní og um 9,0% á breytilegu verðlagi. Séu gögnin árstíðaleiðrétt er samdráttur á raftækjasölu 5,5% milli mánaða. Það sem af er þessu ári hefur raftækjaverslun verið töluvert meiri en á sama tímabili í fyrra. Veltuaukning raftækjaverslunar hófst í júní 2010 og hefur haldist nokkuð stöðug síðan að raunvirði.