Viðskiptaráð fagnar frumvarpi um breytingar á þinglýsingarlögum frá innanríkisráðuneytinu og leggur til að frumvarpsdrögin nái fram að ganga.

„Með drögunum er lagður grundvöllur að rafrænum þinglýsingum skjala en nái frumvarpið fram að ganga verður mögulegt að þinglýsa öllum skjölum rafrænt,“ segir í frétt ráðsins .

„Viðskiptaráð fagnar því að loks standi til að færa þinglýsingar í nútímalegt horf hér á landi og tekur ráðið undir með ráðuneytinu að brýnt sé að breyta formlegu og stundum seinvirku kerfi yfir í hraðvirka og notendavæna rafræna þjónustu.“

Öll framkvæmd hjá einu sýslumannsembætti

Ráðið fagnar einnig þeirri breytingu frá fyrri drögum að nú sé skýrt kveðið á um að Ísland verði eitt þinglýsingarumdæmi, sem ætti að auka framleiðni í opinberum rekstri því þá verði einungis einu sýslumannsembætti falin framkvæmd þinglýsinganna.

„Í þessu samhengi er ástæða til að undirstrika mikilvægi þess að sú hagræðing sem næst með breytingum þessum skili sér aftur til ríkissjóðs en verði ekki ráðstafað í önnur minna aðkallandi verkefni innan sýslumannsembættanna,“ segir ráðið.

„Viðskiptaráð ítrekar það sem fram kom í fyrri umsögn ráðsins um drög að frumvarpinu að mikilvægt sé að skýr tímalína liggi fyrir um innleiðingu rafrænna þinglýsinga. Það veitir aðgerðinni töluvert aðhald ef fyrirfram er ljóst hvenær heimila eigi rafrænar þinglýsingar á tilteknum tegundum skjala til viðbótar við veðskjöl.“