Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrverandi forstjóri FL Group, fær 130 milljónir greiddar frá félaginu næstu fjögur til fimm árin vegna starfslokasamnings, segir í skráningarlýsingu félagsins.

Ragnhildur hætti störfum hjá FL Group í október eftir að hafa starfað hjá félaginu í fimm mánuði sem forstjóri.

Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri félagsins, hlýtur rúmlega 160 milljónir næstu fjögur til fimm árin vegna starfslokasamnings, en hann lét hætti störfum hjá félaginu á síðasta ári.