Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. ágúst 2008 vegna veikinda.

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri lagaskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið sett ráðuneytisstjóri meðan á leyfi hans stendur.

Þá hefur Þórunni J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu, verið falið að vera staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.