Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun. Hún tekur til starfa við áramótin. Fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun, að innleiðing á stefnu Landsvirkjunar um samfélagsábyrgð verður sérstakt forgangsverkefni hjá fyrirtækinu á næsta ári. Ragna Sara gegndi áður starfi yfirmanns samskiptasviðs Landsvirkjunar.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun er haft eftir forstjóranum Herði Arnarsyni, að Landsvirkjun hafi sett sér metnaðarfulla stefnu um samfélagsábyrgð. „Mikil tækifæri felast í því fyrir Landsvirkjun að innleiða og uppfylla þessa stefnu og getur hún skilað okkur betri samkeppnisstöðu fyrirtækisins, aukið starfsánægju og dregið úr kostnaði ef vel tekst til.“

Ragna Sara hefur verið yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar frá árinu 2010. Hún er með MSc-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands.

Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá Nordic Business and Development meðal annars við innleiðingu umhverfis- og samfélagsstefnu í fyrirtækjum. Einnig stýrði Ragna verkefninu Nordic Business Outreach fyrir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og utanríkisráðuneytið en áður gegndi hún starfi viðskiptafulltrúa í sendiráði Íslands í Danmörku. Ragna starfaði við fjölmiðlun á árunum 1998-2006, bæði sem blaðamaður á Morgunblaðinu og dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu. Hún hlaut árið 1999 verðlaun umhverfisráðherra fyrir greinarnar Landið og orkan sem birtar voru í Morgunblaðinu.