Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.  Ragna er MSc í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og BA í mannfræði frá Háskóla Íslands.  Ragna hefur starfað sem ráðgjafi hjá Nordic Business and Development undanfarin tvö ár, meðal annars við innleiðingu umhverfis- og samfélagsstefnu í fyrirtækjum.  Einnig stýrði Ragna verkefninu Nordic Business Outreach fyrir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og utanríkisráðuneytið en áður gegndi hún starfi viðskiptafulltrúa í sendiráði Íslands í Danmörku.

Ragna starfaði við fjölmiðlun á árunum 1998-2006, bæði sem blaðamaður á Morgunblaðinu og dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu.  Hún hlaut árið 1999 verðlaun umhverfisráðherra fyrir greinarnar Landið og orkan sem birtar voru í Morgunblaðinu.  Ragna hefur ritstýrt og haft umsjón með heimildarmyndum og sjónvarpsþáttum og haldið fjölda fyrirlestra um alþjóðaviðskipti og ábyrgð fyrirtækja segir í tilkynningu.

Ragna Sara er í sambúð með Stefáni Sigurðssyni, hagfræðingi, og eiga þau tvö börn.