Landsbankinn og íslenska ríkið hafa tilnefnt þrjá aðila til að sitja í úrskurðarnefnd um fjárhagslegt uppgjör milli þeirra vegna yfirtöku landsbankans á SpKef.

Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður var valinn af báðum málsaðilum til að vera formaður nefndarinnar.

Auk þess tilnefndi Landsbankinn Sigríði Guðmundsdóttur endurskoðanda og íslenska ríkið Garðar Jón Bjarnason endurskoðanda til að sitja í nefndinni.