Ragnar Birgisson hefur látið af störfum sem forstjóri Skífunnar. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Nýr forstjóri Skífunnar er Sverrir Berg Steinarsson en hann er meirihlutaeigandi að hlutafélaginu Nordex sem rekur Next-verslunina í Kringlunni.

Meðeigandi Sverris í Next er Róbert Melax sem nýlega keypti Skífuna.