Ragnar Davíð Baldvinsson hefur tekið til starfa sem markaðsstjóri Icewear. Ragnar stundaði nám í rekstrarstjórnun við Háskólann í Reykjavík, og er er nemi í Háskólanum á Akureyri í stjórnun og markaðsfræði. Áður starfaði Ragnar á fyrirtækjasviði A4/Egilsson og um tíma hjá Poulsen hf og Bílanaust hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icewear.

Icewear var stofnað árið 1972 og sérhæfði fyrirtækið sig í að framleiða jakka og peysur úr íslenskri ull. Í gegnum árin hefur Icewear þróast og í dag framleiðir fyrirtækið útivistarfatalínu hannaða á íslandi, sem spannar allt frá ullarpeysum til dúnúlpna.