Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið endurkjörinn formaður VR til tveggja ára en kosningu lauk í hádeginu í dag. Hann hlaut 6.526 atkvæði eða um 63% greiddra atkvæða. Alls greiddu 10.346 atkvæði í kosningunum og var þátttakan því 28,8%.
Helga Guðrún Jónasdóttur, stjórnmála-og fjölmiðlafræðingur, bauð sig fram gegn Ragnari en hún hlaut 3.549 atkvæði eða um 34,3% greiddra atkvæða. Alls tóku 271 félagsmenn VR eða um 2,6% greiddra atkvæða, ekki afstöðu í formannskjörinu.
Einnig var kosið í stjórn VR sem skipar sjö stjórnarmenn. Eftirfarandi einstaklingar voru kosnir í stjórnina til tveggja ára:
- Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir
- Jón Steinar Brynjarsson
- Helga Ingólfsdóttir
- Sigurður Sigfússon
- Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
- Þórir Hilmarsson
- Harpa Sævarsdóttir
Varamenn í stjórn VR sem voru kosnir til eins árs verða Jónas Yngvi Ásgrímsson, Sigríður Hallgrímsdóttir og Arnþór Sigurðsson.
Alls voru 35.919 á kjörskrá. Atkvæðisrétt í kosningunum hörðu allir fullgildir VR-félagar ásamt eldri félagsmönnum sem greiddu eitthvert félagsgjald á 67. aldursári og höfðu greitt a.m.k. 50 mánuði af 60 á síðustu fimm árum áður en þeir urðu 67 ára.