Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir svokallaðan kjarapakka Sjálfstæðismanna, sem sitja í minnihluta í borgarstjórn, fagnaðarefni og gott innlegg að því er fram kemur í Fréttablaðinu .
Sérstaklega þar sem komið væri að því að ræða gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar sem hafi áhrif á vísitölu neysluverðs og þar af leiðandi á verðtrygginguna. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um leggja Sjálfstæðismenn til að álögur á hvert heimili lækki um 10 þúsund krónur á mánuði.
„Þarna er verið að koma inn á byggingarréttargjöldin sem hafa áhrif á húsnæðis- og leiguverð. Þarna eru tillögur, eins og með lækkun útsvars, sem opna á auknar ráðstöfunartekjur okkar félagsmanna sem búa í Reykjavík,“ segir Ragnar Þór.
„Ég fagna því að kjörnir fulltrúar sveitarfélaga séu farnir að taka tillit til þeirrar alvarlegu stöðu sem er komin upp á vinnumarkaði og hugsa lausnamiðað í þeim efnum.“
Meirihlutinn styður ekki tillögurnar
Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn lýsir vonbrigðum með að meirihlutinn styðji ekki tillögurnar, því borgin myndi hagnast á því að kjarasamningar yrðu kláraðir.
„Stóra myndin er sú að ef kjarasamningar nást án þess að stöðugleika sé raskað, að allt fari á hliðina með fjöldagjaldþrotum fyrirtækja eða verðbólgu, þá fær borgin ávinninginn.“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kallar kjarapakkann hins vegar lýðskrum til að slá ryki í augu kjósenda, þær væru bæði ófjármagnaðar og óábyrgar því þær þýddu 5 milljarða gat í fjármálum borgarinnar. „Þetta er svokallað bull. Innihaldslaust og ábyrgðarlaust bull.“