Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn nýr formaður VR til tveggja ára. Hann bauð sig fram gegn Ólafíu B. Rafnsdóttur. Ragnar Þór hlaut 62,98% atkvæða en Ólafía B. Rafnsdóttir 37,02%. 3,15% tóku ekki afstöðu. Þetta kemur fram í frétt á vefsvæði VR .
Atkvæði greiddu 5.706. Á kjörskrá voru alls 33.383. Kosningaþátttaka var því 17,09%.
Sjö stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára:
- Ólafur Reimar Gunnarsson
- Harpa Sævarsdóttir
- Birgir Már Guðmundsson
- Guðrún Björg Gunnarsdóttir
- Unnur María Pálmadóttir
- Helga Ingólfsdóttir
- Elisabeth Courtney