Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs hefur óskað eftir tímabundinni lausn frá störfum og hefur stjórn sjóðsins samþykkt það. Jón Finnbogason, sem gegnt hefur starfi forstöðumanns á fjármálasviði Byrs mun leysa Ragnar af hólmi.

Í tilkynningu frá Ragnari kemur fram að sem kunnugt er hafi fulltrúar embættis sérstaks saksóknara farið inn í höfuðstöðvar Byrs og óskað þar eftir aðgangi að gögnum. Tilefnið var gagnaöflun embættisins í tengslum við skoðun á lánveitingum Byrs til Exeter Holdings og tengdum viðskiptagjörningum.

Þá var einnig var óskað eftir því að Ragnar mætti sem sparisjóðsstjóri til skýrslutöku og veitti ákveðnar upplýsingar vegna þessa máls. Það segist Ragnar fúslega hafa gert.

„Ég vil ítreka að ég fagna því að málið sé skoðað og að öllum vafa verði í kjölfarið eytt um hvort rétt hafi verið að því staðið af hálfu sparisjóðsins eða ekki,“ segir Ragnar í tilkynningunni.

Það sem eftir fer er birt óbreytt upp úr tilkynningu Ragnars.

„Ég vil jafnframt árétta að engin tengsl voru á milli Exeter Holdings og Húnahorns (félags í eigu lykilstarfsmanna) áður en Exeter eignaðist bréf sem áður voru í eigu Húnahorns, í kjölfar veðkalls MP banka.

Það hefur vissulega verið erfitt fyrir starfsfólk Byrs að búa við óvissu vegna þessa máls. Ég legg höfuðáherslu á að friður megi ríkja um starfsemi Byrs sparisjóðs og að það mikla traust sem viðskiptavinir hafa sýnt okkur raskist ekki. Með það fyrir augum hef ég ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem sparisjóðsstjóri Byrs. Stjórn Byrs féllst á tillögu mína þessa efnis á fundi í gærkvöldi og tekur ákvörðunin gildi nú þegar.

Er það einlæg von mín að þessi ákvörðun geti orðið til þess að skapa frið um störf sparisjóðsins og orðið til þess að eyða allri mögulegri tortryggni vegna þessa máls. Ég ítreka að ég tel að störf mín fyrir Byr hafi í einu og öllu verið í samræmi við lög, enda hef ég unnið af metnaði og bestu samvisku fyrir sparisjóðinn.

Stjórn Byrs hefur óskað eftir því við mig að ég sinni áfram verkefnum er tengjast fjárhagslegri endurreisn sparisjóðsins.

Að lokum tel ég mikilvægt að skoðun embættis sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst.“