Ekki stendur til að breyta lögum um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja segir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra. Hún hefur boðað aðila atvinnulífsins á fund þar sem verður rætt um lögin og hvað megi betur fara. Hún segir að fundurinn þýði ekki að til standi að afnema lögin sem tóku í gildi síðasta haust.

VB Sjónvarp ræddi við Ragnheiði Elínu.