Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur ákveðið að ráðast í aðgerðir til að einfalda regluverk og draga úr íþyngjandi kröfum á almenning og atvinnurekstur.

Ragnheiður Elín lagði fram minnisblað þess efnis á ríkisstjórnarfundi í morgun en þetta er í takt við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Á vef atvinnuvegaráðuneytisins kemur fram að fyrstu aðgerðir munu beinast að almennu viðskiptaumhverfi og þá einkum út frá hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

„Í framhaldinu er ráðgert að fara kerfisbundið yfir allt regluverk ráðuneytisins með þarfir notenda í huga og ekki síður hvort þær kröfur sem gerðar eru skili árangri,“ segir á vef ráðuneytisins.

Þá kemur fram að áhersla verði lögð á að undirbúa aðgerðir í samstarfi við hagsmunaaðila en að vinna sé hafin við að yfirfara regluverk og kröfur sem gerðar eru til atvinnureksturs í lögum, reglugerðum eða verklagsreglum.

„Mikilvægt að ráðast strax í aðgerðir sem geta skilað skjótum og merkjanlegum árangri,“ segir á vef ráðuneytisins.

„Þau viðfangsefni sem hafist verður handa við tengjast annars vegar stofnun fyrirtækja og starfsleyfum og hins vegar kröfum um skil fjárhagsupplýsinga. Aðgerðir sem þessar geta kallað á breytingar á lögum og reglum eða einungis breytingar á skipulagi og verklagi í stjórnsýslunni.“