Ákvörðun um álver í Helguvík er þeirra sem að verkefninu standa segir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra. Michael A. Bless, forstjóri Century Aluminium, sagði nýlega að líta þurfi á fjárfestingu í álveri í Helguvík sem sokkinn kostnað. Hann segir orkuverð sem standi til boða hjá HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur óásættanlegt.

Ragnheiður Elín segist vilja fá svör um framhaldið þar sem óvissan sé slæm.