„Þetta er mjög spennandi verkefni að takast á við,“ segir Ragnheiður Þorkelsdóttir sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra á lögmannstofunni Advel lögmenn. Ragnar Guðmundsson gegndi starfinu áður. Þau Ragnheiður og Ragnar eru bæðir eigendur lögmannsstofunnar. Á sama tíma tók ný stjórn við hjá Advel lögmönnum. Ragnheiður hefur unnið hjá Advel lögmönnum síðan árið 2008.

Ragnheiður segir það nýbreytni að allri stjórn lögmannsstofunnar sé skipt út í einu. Það hafi ekki gerast áður.

Í fyrri stjórn Advel lögmanna sátu Guðmundur Siemsen, sem jafnframt var formaður stjórnar, og þau Dóra Sif Tynes og Jón Ögmundsson. Nýja stjórn skipa þau Stefán Þór Ingimarsson, sem jafnframt tók við sem formaður stjórnar, Sigrún Helga Jóhannsdóttir og Ragnheiður.