Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óskar eftir stuðningi í 1. sæti listans í prófkjöri sem fram fer 14. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ragnheiði Elínu en hún situr nú á þingi fyrir Suðvesturkjördæmi.

„Undanfarnar vikur hefur verið kallað eftir breytingum og endurnýjun í forystusveit flokksins í kjördæminu. Mikilvægt er að nýta þann kraft sem á að endurspeglast í opnum og lýðræðislegum prófkjörum og forsenda þess er að sjálfstæðismenn um allt land hafi val um frambjóðendur,“ segir Ragnheiður Elín í tilkynningunni.

„Ég hef verið hvött til þess að færa mig um set og bjóða mig fram til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi og hef fundið fyrir miklum stuðningi góðs fólks alls staðar að úr kjördæminu. Ég hef ákveðið að taka þeirri áskorun.“

Ragnheiður Elín er borin og barnfæddur Keflvíkingur og bjó þar í foreldrahúsum fram yfir háskólanám. Hún á þar fjölskyldu og vini og þekki því vel til þeirra mála sem skipta miklu máli í kjördæminu.

„Ég hef mikinn áhuga á að vinna að þeim málum af heilum huga og því er þátttaka í stjórnmálum í Suðurkjördæmi  mikil og spennandi áskorun,“ segir Ragnheiður Elín í tilkynningunni.

„Um leið er hún tækifæri fyrir mig til að snúa aftur á heimaslóðir. Ég hlakka til að vinna með sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi að þeim fjölmörgu brýnu málum sem framundan eru og tilheyra þeirri liðsheild sem mun mynda nýja forystusveit í kjördæminu.“