Stjórn Reiknistofu bankanna hefur ráðið Ragnhildi Geirsdóttur í starf forstjóra félagsins. Ragnhildur kemur til RB frá Wow air þar sem hún starfaði sem aðstoðarforstjóri frá því í ágúst 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RB, og á vef Wow air .

Í tilkynningu Wow kemur einnig fram að Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri flugfélagsins, muni taka við hlutverkinu.

Áður en Ragnhildur fór til Wow var hún framkvæmdastjóri Rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum í fimm ár og forstjóri Promens í rúm fimm ár. Þar áður starfaði Ragnhildur hjá Icelandair/Flugleiðum í sex ár og gegndi stöðu forstjóra í lok þess tíma.

Ragnhildur er verkfræðingur og viðskiptafræðingur að mennt. Hún lauk CS prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1995, MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Wisconsin árið 1996 og MS prófi í viðskiptafræði frá sama skóla 1998.

Ragnhildur Geirsdóttir segir: „RB er spennandi fyrirtæki sem á sér langa sögu. Hjá fyrirtækinu starfar hópur af afar hæfu starfsfólki sem verður gaman að vinna með að þeim breytingum sem framundan eru“.

Sævar Freyr Þráinsson stjórnarformaður RB segir: „Ég fagna komu Ragnhildar til RB. Hún er öflugur leiðtogi með víðtæka reynslu sem mun nýtast RB á þeim spennandi tímum sem eru framundan. Fyrirtækið hefur verið að taka miklum breytingum á síðustu árum og munu þær halda áfram enda leikur RB stórt hlutverk í að auka gæði og hagkvæmni í fjármálakerfinu á Íslandi, m.a. með rekstri helstu grunnkerfa fjármálafyrirtækja“.

Ragnhildur mun taka við af Friðriki Snorrasyni sem sagði upp störfum á síðasta ári eftir að hafa starfað hjá fyrirtækinu í tæp átta ár, en í tilkynningu RB er hann sagður hafa leitt fyrirtækið í gegnum miklar breytingar.