Ragnhildur Hjaltadóttir verður ráðuneytisstjóri nýs innanríkisráðuneytis sem tekur formlega til starfa um næstu áramót við sameiningu dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu en embættið var auglýst 29. september og bárust 13 umsóknir en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Skipað verður í embættið til fimm ára og mun ráðuneytisstjóri taka við embætti 1. janúar 2011 og stýra innanríkisráðuneyti undir stjórn Ögmundar Jónassonar sem verður frá sama tíma  innanríkisráðherra. Fram til þess dags eða þar til nýtt ráðuneyti hefur starfsemi mun Ragnhildur vinna að sameiningu ráðuneytanna ásamt sérstakri verkefnisstjórn.

Ragnhildur er lögfræðingur að mennt. Hún lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1979 og framhaldsnámi í alþjóðarétti árið 1981 við Institut Internationale de Hautes Études í Genf í Sviss, með sérstakri áherslu á mannréttindi.

Þá hefur Ragnhildur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars setið í stjórn Orators, Lífs og lands og Kvenréttindafélags Íslands og hún var formaður Hollvinasamtaka Háskóla Íslands árin 1996 til 2004.

Ragnhildur starfaði í dóms- og kirkjumálaráðuneyti árið 1982 en hóf störf í samgönguráðuneyti árið 1983. Síðustu sjö ár hefur hún verið ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins, sem varð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti  1. október 2009.