Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur, gefur kost á sér í 3.-4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi laugardaginn 20. janúar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnhildur Jónsdóttir er 38 ára hagfræðingur með víðtæka reynslu af heilsueflingu og forvörnum. Hún situr í stjórn heilbrigðistæknifyrirtækisins SidekickHealth og hönnunarstofunnar Reykjavík letterpress.

Fyrir sveitarstjórnarkosningar vill Ragnhildur leggja áherslu á að forgangsraða í þágu heilsu, líðanar og lífsgæða bæjarbúa á öllum aldursskeiðum, að gera Seltjarnarnes að heilsueflandi samfélagi, auk áframhaldandi aðhaldssemi í fjármálum bæjarins segir í fréttatilkynningu.

Ragnhildur er uppalin á Seltjarnarnesi og hefur tekið virkan þátt í félagsstörfum. Hún hefur meðal annars setið í foreldraráði Leikskóla Seltjarnarness þar sem hún beitti sér fyrir bættri næringu leikskólabarna.