Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrverandi forstjóri FL Group og Promens, mun samkvæmt heimildum Morgunblaðsins taka sæti í stjórn Kaupþings. Nauðasamningar verða þó fyrst að klárast og er búist við að svo verði í haust.

Eftir þá samninga eignast kröfuhafar félagið. Tveir stjórnarmenn verða íslenskir ef stjórnin verður sjö manna eins og stefnt er að. Ekki hefur þó verið gerður samningur við Ragnhildi.